Skip to main content

Fræðsluröð ÖBÍ: Fjáröflun og markaðsmál almannaheillafélaga

Fyrsta námskeið vorsins í Fræðsluröð ÖBÍ; Fjáröflun og markaðsmál almannaheillafélaga. Á námskeiðinu verður fjallað um helstu áskoranir og tækifæri í fjáröflun og markaðsmálum almannaheillafélaga. Rýnt verður í hugmyndir og leiðir til að auka sýnileika, rækta tengsl og sjálfbærni starfseminnar. Viðburðurinn hentar öllum sem koma að rekstri, markaðs- eða fjáröflunarstarfi félaga.

Námskeiðið verður haldið hér í Mannréttindahúsinu Sigtúni 42, 21. janúar kl. 16:00-19:00.
Til að skrá þátttöku er smellt á eftirfarandi hlekk – https://www.obi.is/skraning-fraedslurod-obi-fjaroflun-og-markadsmal-almannaheillafelaga/

Kostnað af námskeiðahaldinu ber ÖBÍ.

Leiðbeinandi er Andri Árnason, framkvæmdastjóri Takk sem hefur sérhæft sig í styrktarsamfélögum, markaðsetningu og þjónustu við almannaheillafélög. Takk er markaðsfyrirtæki sem vinnur með almannaheillafélögum að því að tengja fólk við góð málefni. Með fjölbreyttum markaðsleiðum og sérfræðiþekkingu í fjáröflun og samskiptum.