
Leikkonan Kristín Þóra Haraldsdóttir kom fram fyrir þéttsetið Mannréttindahús og flutti áhrifaríkt og einlægt erindi sem vakti bæði hlátur og eftirtekt. Þar deildi hún persónulegri og dýrmætri innsýn í eðli streitu og hvernig hún birtist í daglegu lífi okkar.
Í erindi sínu lagði Kristín Þóra áherslu á einföld en áhrifarík bjargráð sem allir geta tileinkað sér. Hún ræddi meðal annars mikilvægi réttrar öndunar, hugleiðslu og reglulegrar hreyfingar sem lykilþætti í því að takast á við álag. Hún benti einnig á að góð tuttugu sekúndna faðmlög geti haft raunveruleg jákvæð áhrif á líðan okkar með því að auka losun hamingjuhormónsins oxytósíns.
Með sínum einstaka frásagnarstíl nálgaðist Stína efnið á bráðfyndinn hátt, en af einlægni og hispursleysi, þar sem hún fjallaði um stress, streitu, seiglu, aumingjaskap og dugnað.
Erindið var bæði hvetjandi og nærandi, þar sem húmor og einlægni fóru hönd í hönd og skildu áheyrendur eftir með nýja sýn á eigin viðbrögð við álagi, auk verkfæra til að takast á við það á heilbrigðari hátt.