
Fulltrúar Soroptimistasambands Íslands komu nýverið í heimsókn í Mannréttindahúsið þar sem þær fengu fræðslu um starfsemina á staðnum. Þar var farið yfir uppruna hússins, sögu þess og hlutverk í baráttu fyrir mannréttindum.
Soroptimistar eru alþjóðleg samtök kvenna sem vinna að því að bæta stöðu kvenna og stúlkna um allan heim. Þær leggja áherslu á mannréttindi, jafnrétti, menntun og eflingu kvenna, með það að markmiði að skapa réttlátara og betra samfélag.
Í heimsókninni var jafnframt boðið upp á fyrirlestur frá Endósamtökunum þar sem Anna Margrét Hrólfsdóttir, framkvæmdastjóri samtakanna, fjallaði um endómetríósu, fræðsluátak samtakanna og helstu áskoranir sem tengjast sjúkdómnum.