Skip to main content
Morgunbollinn

Hvernig virka lífeyrissjóðir?

By 30. apríl 2026maí 11th, 2026No Comments

Mikilvægi íslenska lífeyrissjóðskerfisins var rætt á Morgunbollanum þar sem Gerður Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Brú lífeyrissjóði hélt erindi.

Á Íslandi byggist lífeyriskerfið meðal annars á skyldubundnum lífeyrissjóðum þar sem launafólk og atvinnurekendur greiða iðgjöld sem safnast upp yfir starfsævina. Hlutverk lífeyrissjóðanna er að tryggja fólki tekjur eftir starfslok auk þess að veita rétt til örorku-, maka- og barnalífeyris. Lífeyrissjóðirnir eru jafnframt í eigu sjóðfélaganna sjálfra og gegna mikilvægu hlutverki í fjárhagslegu öryggi almennings.

Í erindinu var einnig fjallað um viðbótarlífeyrissparnað, eða séreignarsparnað, sem er frjáls sparnaður til viðbótar við skyldulífeyri. Á Íslandi eru fjölmargar leiðir í viðbótarlífeyrissparnaði í boði og getur slíkur sparnaður skipt miklu máli fyrir fjárhagslegt öryggi síðar á ævinni. Hann getur meðal annars nýst til að hækka ráðstöfunartekjur eftir starfslok eða við kaup á fyrstu íbúð. Nú eru í boði sjötíu og sjö mismunandi leiðir í séreignasparnaði og því er mikilvægt að gefa sér tíma til að velja vel.

Sérstök áhersla var lögð á mikilvægi þess að ungt fólk kynni sér lífeyrismál snemma á starfsævinni. Reglulegur sparnaður yfir langan tíma getur haft veruleg áhrif á framtíðarfjárhag og því mikilvægt að fylgjast með réttindum sínum og iðgjaldagreiðslum frá upphafi.

Erindið gaf góða og aðgengilega innsýn í eitt mikilvægasta öryggiskerfi íslensks samfélags.