Dr. TA Loeffler hélt fyrirlestur í boði ÖBÍ réttindasamtaka og félags- og tómstundafræðibrautar Háskóla Íslands í Mannréttindahúsinu 5. september þar sem rætt var um um aðgengilega útivist.
Dr. Loeffler er prófessor í útimenntun og afþreyingu við Memorial-háskóla á Nýfundnalandi. Hún er þekkt víða um heim fyrir fræðastörf, ævintýramennsku og náttúruvernd og er jafnframt virtur kennari, rithöfundur og fyrirlesari.
Þá er hún handhafi Brigding the Gap verðlauna Recreation Newfoundland and Labrador en verðlaunin eru veitt einstaklingum eða samtökum sem hafa stuðlað að aukinni þátttöku og inngildingu fatlaðs fólks í tómstundir, íþróttir og virkni.