Skip to main content

1. maí kaffi í Mannréttindahúsinu

Mannréttindahúið býður upp á kaffi eftir kröfugönguna þann 1. maí. Þar verður hægt að hlýja sér og spjalla!

ÖBÍ réttindasamtök hvetja öll til að fjölmenna í kröfugöngu þann 1. maí. Nú sem fyrr er mikilvægt að fatlað fólk á Íslandi láti vel í sér heyra og krefjist jöfnuðar og réttlætis, bættra kjara og að sköpuð séu störf við hæfi.

Mætum, krefjumst réttlætis og látum í okkur heyra.

Nánari upplýsingar er nær dregur.