
Verið velkomin á Mannréttindamorgun fimmtudaginn
26. nóvember kl. 10:00.
Á viðburðinum mun Aldís Rún Ingólfsdóttir, sem hlaut verðlaun ÖBÍ fyrir framúrskarandi meistararitgerð sína, „Hvað ef við hlustuðum?“, segja frá niðurstöðum rannsóknarinnar.
Nánar um fyrirlesara:
Aldís Rún Ingólfsdóttir útskrifaðist með ML-gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík síðastliðinn júní og starfar nú sem saksóknarfulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, þar sem hún hefur starfað frá árinu 2023.
Sjálf hefur Aldís haft mikinn áhuga á samfélaginu, lögum og reglum og ekki síst mannréttindum.
Efni fyrirlesturs:
Í erindinu sínu mun Aldís fjalla um meistararitgerð sína, „Hvað ef við hlustuðum?“, sem fjallar um kynbundið ofbeldi gegn fötluðum konum á Íslandi og skyldur íslenska ríkisins til að tryggja þeim vernd.
Sérstök áhersla verður lögð á fjölþætta mismunun fatlaðra kvenna, aðgang þeirra að réttarkerfinu og hvernig fötlun getur haft áhrif á meðferð og úrlausn mála innan réttarvörslukerfisins.
Viðfangsefnið sameinar tvö af hennar helstu áhugasviðum innan lögfræðinnar, refsirétt og mannréttindi, en áhuginn á efninu kviknaði ekki síst hjá henni vegna þess hversu litla athygli ofbeldi gegn fötluðum konum hefur fengið í fræðilegri og samfélagslegri umræðu.