Skip to main content

Morgunbollinn – Streyta og bjargráð með Kristínu Þóru Haraldsdóttur

Þann 9. apríl kl.10:00-11:00. Heitt á könnunni frá kl.9:30

Leikkonan Kristín Þóra Haraldsdóttir blandar saman uppistandi, einleik og einlægni í áhrifaríkum fyrirlestri um lífið, álagið og streituna sem fylgir því einfaldlega að vera manneskja.

Í fyrirlestrinum „Streita og bjargráð“ fjallar hún af hreinskilni og húmor um eigin reynslu af kulnun – þegar líkaminn sagði stopp árið 2022 og ekkert annað var í boði en að hlusta. Hún segir frá því hvernig hún lærði að þekkja viðvörunarmerkin, takast á við skömmina sem fylgdi og horfast í augu við þá staðreynd að hún gæti ekki haldið áfram á sama hraða.

Með hlýju og beinskeyttum húmor ræðir Kristín hvernig skömmin getur haldið fólki föstu í þögn, en líka hversu algeng kulnun er í raun og veru. Hún deilir þeim bjargráðum sem hafa nýst henni best: að hugsa lífið í tímabilum, taka einn dag í einu og passa að álag fái mótvægi í hvíld.

Þetta er fyrirlestur sem vekur bæði hlátur og eftirtekt. Hann er fyrir öll sem finna fyrir álagi, hafa upplifað kulnun eða vilja læra að hlusta betur á eigin mörk.