
Morgunpáskabollinn 🐣 kl.10:00-11:00 í Mannréttindahúsinu. Heitt á könnunni frá kl.9:30.
Njótum notalegrar samverustundar rétt fyrir páskana.
Yfir léttum veitingum fáum við að kynnast henni Þórdísi Bjarnleifsdóttur, starfsnema hjá ÖBÍ, sem er að ljúka meistaranámi í félagsráðgjöf. Hún mun segja okkur örstutt frá lokaverkefni sínu: “Þögnin í kringum systkinaofbeldi: Viðhorf fagfólks til ósýnilegs ofbeldis innan fjölskyldunnar” og deila innsýn úr náminu sínu.
Að því loknu endum við á hressum og jákvæðum nótum með spurningaleik og góðri stemningu. ✨