Skip to main content
Morgunbollinn

Hamingja í skugga áfalla

By 2. mars 2026No Comments

Ebba Áslaug Kristjánsdóttir mætti í Mannréttindahúsið með fyrirlestur yfir morgunbollanum nýverið. Þar sagði hún frá meistararitgerð sinni „Þakklát fyrir reynsluna en ekki fyrir krabbameinið“.

Ritgerðin fjallar um upplifun fjögurra ungra kvenna af krabbameini og lærdómi þeirrar reynslu. Fyrirlesarinn Ebba Áslaug útskrifaðist haustið 2024 með meistaragráðu í uppeldis- og menntunarfræði, með áherslu á jákvæða sálfræði.

Síðastliðið haust birtist ritrýnd grein í tímaritinu Netlu þar sem greint er frá rannsókninni og niðurstöðum hennar.

Greinina má nálgast hér: https://doi.org/10.24270//netla.2025/16