Skip to main content
MorgunbollinnÖBÍ

Litvinnzlan & ListaGott

By 13. febrúar 2026febrúar 18th, 2026No Comments

Listvinnzlan er vinnustaður þar sem list, mannréttindi og sköpunarkraftur mætast.

Myndlistasýningin ListaGott

Myndlist, mannréttindi og sköpun mættust með áþreifanlegum hætti þegar sýningin ListaGott var opnuð í Mannréttindahúsinu þann 12. febrúar. Þar fylltu litrík og fjölbreytt verk veggi hússins og kölluðu fram bæði gleði og eftirtekt gesta sem fjölmenntu á opnunina.

Sýningin er samstarfsverkefni við Listvinnzluna, sem er framsækið menningar- og mannréttindaverkefni í hjarta Reykjavíkur. Þar er listin ekki aðeins tjáningarform heldur líka atvinnuvettvangur og leið til valdeflingar hæfileikaríks fatlaðs listafólks.

Fjölbreyttar raddir á veggjum

Á sýningunni má sjá verk eftir listafólkið Atla Már Indriðason, Elínu S. M. Ólafsdóttur (ESMÓ), Gígju Garðarsdóttur, Hörpu Rut, Helgu Matthildi Viðarsdóttur, Ísak Óla Sævarsson, Óskar Theódórsson, Sigrúnu Huld Hrafnsdóttur, Þórir Gunnarsson (Listapúkanum) og Þorvald Arnar Guðmundsson.

Verkin endurspegla ólíka nálgun, ólíka miðla og persónulega sýn hvers listamanns. Sameiginlegt er þó sterkt myndmál og einlæg frásögn sem gefur innsýn í hugarheim og reynslu listafólksins.

Erindi um list, réttindi og raunveruleg tækifæri

Í tengslum við opnun sýningarinnar ListaGott í Mannréttindahúsið héldu Margrét M. Norðdahl, stofnandi Listvinnzlunar, ásamt listafólkinu Elínu Sigríði Maríu Ólafsdóttur (ESMÓ) og Þóri Gunnarssyni (Listapúkanum), erindi þar sem þau sögðu frá þróun og hugmyndafræði starfseminnar.

Þar kom fram hvernig Listvinnzlan hefur vaxið úr hugmynd í lifandi vinnustað og listmiðstöð þar sem list, menning, velferð og mannréttindi mætast í framkvæmd en þar starfa milli 30-40 listamenn í hverri viku. Lögð var áhersla á að um sé að ræða raunverulegan vinnustað þar sem fatlað listafólk starfar á eigin forsendum, nýtur faglegs stuðnings, þróar sjálfstæðan listferil og skapar sér tekjur.

„Þetta er ekki bara vinnustaður heldur líka eins og önnur fjölskylda manns,“ sagði eitt þeirra í erindinu. Í máli þeirra kom skýrt fram hversu mikilvægt það er að vera umkringdur öðru listafólki, læra hvert af öðru og byggja upp samfélag í kringum listina. Slíkur vettvangur hefur ekki alltaf staðið fötluðu listafólki til boða, meðal annars vegna hindrana í aðgengi að listnámi og viðeigandi vinnuaðstöðu.

Ræðumenn lögðu áherslu á að aðgangur að list og atvinnu sé ekki einungis einstaklingsbundið réttindamál heldur samfélagslegt hagsmunamál. Þegar hæfileikar fá að njóta sín og fjölbreyttar raddir heyrast styrkist menningarlífið í heild – og samfélagið allt.

Viðurkenningar fyrir brautryðjendastarf

Starf Listvinnzlunnar hefur ekki farið fram hjá samfélaginu. Árið 2023 hlaut hún Múrbrjót Þroskahjálpar og árið 2025 var hún tilnefnd til Hvatningarverðlauna ÖBÍ réttindasamtaka fyrir brautryðjendastarf sitt á sviði listsköpunar fatlaðs fólks og fjölgun atvinnutækifæra.

Við hvetjum fólk til að koma og skoða sýninguna sem mun standa út febrúarmánuð.