Skip to main content
FræðslaMorgunbollinn

Þögnin í kring um systkinaofbeldi rofin

Á morgunfundi var nýverið fjallað um systkinaofbeldi, lítt sýnilegt en alvarlegt form ofbeldis innan fjölskyldna. Fyrirlesturinn byggði á meistararitgerð Þórdísar Bjarnleifsdóttur 5. árs nema í félagsráðgjöf HÍ og varpaði ljósi á hvernig ofbeldi milli systkina hefur lengi verið vanmetið og jafnvel normalíserað í samfélaginu.

Í erindinu kom fram að þrátt fyrir að systkini séu oft talin nánustu bandamenn hvers annars, geti samband þeirra einnig einkennst af valdaójafnvægi og endurteknu ofbeldi. Systkinaofbeldi getur birst á margvíslegan hátt, meðal annars sem líkamlegt og andlegt ofbeldi, niðurlæging, hótanir eða kynferðislegt ofbeldi. Afleiðingarnar geta verið djúpstæðar og langvarandi, þar á meðal kvíði, áfallaeinkenni og skert sjálfsmynd.

Rannsókn Þórdísar byggir á viðtölum við fagfólk sem starfar með börnum og fjölskyldum. Niðurstöðurnar benda til þess að skortur sé á skýrum skilgreiningum og verkferlum þegar kemur að systkinaofbeldi, sem geti gert fagfólki erfitt fyrir að bregðast við. Þá kom einnig fram að oft ríki úrræðaleysi innan kerfisins og að þörf sé á aukinni fræðslu og vitundarvakningu.

Sérstök áhersla var lögð á að hegðun sem felur í sér ofbeldi sé oft afskrifuð sem „venjuleg systkinarifrildi“. Slík normalísering getur valdið því að alvarleg mál fara framhjá bæði foreldrum og fagfólki. Því sé mikilvægt að greina skýrar á milli uppbyggilegs ágreinings, samkeppni, skaðlegra átaka og raunverulegs ofbeldis.

Í fyrirlestrinum var kallað eftir markvissari viðbrögðum, þar á meðal skýrari skilgreiningum, bættum verkferlum og aukinni fræðslu. Einnig var lögð áhersla á mikilvægi þess að grípa fyrr inn í og taka frásagnir barna alvarlega.

Systkinaofbeldi er raunverulegt og hefur raunverulegar afleiðingar. Með aukinni vitund og sameiginlegu átaki er hægt að rjúfa þögnina og skapa öruggara umhverfi fyrir börn.

Hér má lesa meistararitgerð Þórdísar Bjarnleifsdóttur