Skip to main content
UN women

Alþjóðlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi hefst 25. nóvember

By 18. nóvember 2026No Comments

Alþjóðlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi hefst 25. nóvember, á alþjóðlegum baráttudegi gegn kynbundnu ofbeldi, og stendur til 10. desember, á alþjóðlega mannréttindadaginn. Markmið átaksins er að vekja athygli á kynbundnu ofbeldi sem alvarlegu mannréttindabroti og kalla eftir aðgerðum til að tryggja réttlæti og vernd þolenda.

Alþjóðleg yfirskrift átaksins árið 2026 er „Tryggjum réttlæti, verndum þolendur og stöðvum refsileysi.“

Í ár beinir UN Women á Íslandi sjónum sérstaklega að stafrænu ofbeldi undir yfirskriftinni „Stafrænt ofbeldi er alvöru ofbeldi“. Með herferðinni er vakin athygli á stafrænum hatursummælum og einelti og þeim alvarlegu áhrifum sem slíkt ofbeldi getur haft á líðan, heilsu og möguleika fólks til þátttöku í samfélaginu.

Í tilefni átaksins fer árleg ljósaganga UN Women á Íslandi fram miðvikudaginn 25. nóvember kl. 17.00. Þá verða byggingar og stofnanir víða um land lýstar upp í appelsínugulum lit, sem táknar framtíð án ofbeldis. Mannréttindahúsið er meðal þeirra bygginga sem verða lýstar upp af þessu tilefni.

Nánari upplýsingar um ljósagönguna má finna hér.