
Mannréttindahúsið hefur á skömmum tíma fest sig í sessi sem lifandi miðja mannréttindaumræðu á Íslandi. Nú tekur við næsta skref í þróun hússins – en frá og með morgundeginum verða hér yfir 40 félög með aðsetur. Við fögnum þessum mikilvæga áfanga sem vonandi skilar sér í enn öflugra starfi og samstarfi í þágu mannréttinda.
Frá stofnun árið 2023 hefur Mannréttindahúsið verið heimili fyrir fjölbreytt samtök sem berjast fyrir mannréttindum hvert á sínum forsendum. Í húsinu, gjarnan við kaffivélina, mætast reynsla og þekking, hugsjónir og hagnýt verkefni. Hér verða til samtöl sem geta breytt viðhorfum, styrkt samfélagslega þátttöku og ýtt undir raunverulegar framfarir í mannréttindamálum. Fjöldi fólks leggur leið sína í Mannréttindahúsið á hverju ári til að sækja viðburði, taka þátt í fræðslu, efla tengslanetið eða leggja sitt af mörkum í samtali um brýn samfélagsmál.
Í dag tökum við í notkun nýja álmu og bjóðum velkomin eftirfarandi aðila:
- ADHD samtökin
- Almannaheill, samtök þriðja geirans
- Auðlesið
- Átak, félag fólks með þroskahömlun
- Barnaheill
- Börn með krabbamein – styrktarfélag
- CP félagið
- Íslensk ættleiðing
- EAPN á Íslandi
- Neistinn – styrktarfélag hjartveikra barna
- PCOS/PMOS samtök Íslands
- Sjónarhóll ráðgjafarmiðstöð
- TMF
- Umhyggja – félag langveikra barna
Öflugt samstarf og samtal innanhúss og fjölbreytt viðburðahald gera það að verkum að hingað sækir fólk til að taka þátt, hlusta, læra og hafa áhrif. Slíkur vettvangur skiptir máli, ekki síst á tímum þar sem traust, samstaða og virðing fyrir mannréttindum eiga undir högg að sækja.
Mannréttindahúsið er rekið af ÖBÍ réttindasamtökum og eru þetta tímamót í sögu bæði samtakanna og Mannréttindahússins. Við hlökkum til að fá fleiri öflug félög í hús, fögnum deginum og auknum krafti í baráttuna.
