
Í Morgunbolla í Mannréttindahúsinu kynnti Ævar Ólafsson heimasíðuna www.samstillt.is, sem hann hefur hannað til að reyna auðvelda fjölskyldum veikra barna að finna upplýsingar, réttindi og stuðning þegar mest reynir á.
Áföll eða veikindi geta breytt lífi fjölskyldu á einni stundu. Foreldrar geta þá þurft að takast á við sjúkrahúsferðir, mikilvægar ákvarðanir, breyttar tekjur og að halda heimilinu gangandi, á sama tíma og þeir sinna veiku barni.
Við slíkar aðstæður skiptir stuðningur frá öðrum miklu máli. Fjölskylda, vinir, vinnufélagar og aðrir vilja gjarnan hjálpa en vita ekki alltaf hvernig. Óvissan getur því orðið til þess að fólk dregur sig til baka, þrátt fyrir góðan vilja.
Samstillt er ætlað að auðvelda fólki að stíga inn með skýrum og einföldum hætti. Á www.samstillt.is má meðal annars finna upplýsingar um réttindi og fjárhagslegan stuðning auk fræðslu um samskipti við veikt barn og fjölskyldu þess. Þar má einnig skipuleggja hagnýtan stuðning, meðal annars með máltíðasamræmingu, þannig að fólk í stuðningsneti fjölskyldunnar geti sameinast um að létta undir í daglegu lífi.
Ævar er félagsmaður í Börn með krabbamein og þekkir því þær áskoranir sem geta fylgt því að eiga veikt barn. Hugmyndin að Samstillt byggir meðal annars á þeirri reynslu og þörfinni fyrir aðgengilegri upplýsingar og skýrari leiðir til að virkja stuðning.
Samstillt sameinar þannig upplýsingar um réttindi og úrræði og leiðir til að skipuleggja stuðning í daglegu lífi. Markmiðið er að auðvelda fjölskyldum að fá þann stuðning sem þær þurfa og gera fólki í kringum þær kleift að hjálpa á einfaldan og markvissan hátt þegar mest reynir á.