
Nýlega komu saman fulltrúar frá fjölmörgum frjálsum félagasamtökum á vinnufundi þar sem áhersla var lögð á gerð og úrvinnslu skuggaskýrslna. Skuggaskýrslur eru unnar af félagasamtökum, mannréttindahópum og hagsmunasamtökum og veita sjálfstætt, gagnrýnið eða uppbyggilegt mat á stöðu mála gagnvart alþjóðlegum stofnunum og mannréttindasamningum.
Á fundinum voru rædd fjölbreytt málefni, meðal annars réttindi barna og kvenna, málefni flóttafólks, umhverfismál og réttindi fatlaðs fólks. Farið var yfir helstu dagsetningar og verklag við gerð skýrslna, auk þess sem rætt var hvernig mætti efla samvinnu milli félagasamtaka og styrkja framgang mikilvægra málaflokka.
Líflegar og uppbyggilegar umræður sköpuðust í salnum þar sem fulltrúar sögðu frá reynslu sinni, áskorunum og verkefnum. Fundurinn reyndist dýrmætur vettvangur fyrir þekkingarmiðlun, samráð og aukið samstarf félagasamtaka sem vinna að mannréttinda- og samfélagsmálum.